Details

Tindátinn staðfasti


Tindátinn staðfasti


Hans Christian Andersen's Stories

von: H. C. Andersen, Johann Sigurdsson

0,99 €

Verlag: Saga Egmont Hörbuch
Format: MP3 (in ZIP-Archiv)
Veröffentl.: 20.12.2019
ISBN/EAN: 9788726238280
Sprache: Isländisch

Dieses Hörbuch erhalten Sie ohne Kopierschutz.

Beschreibungen

Í tindátaöskjunni er einn sem sker sig úr. Sá er tindátinn sem vantar á annan fótinn, sökum þess að tinið var uppurið þegar búið var að steypa bræður hans. Dátinn lætur fótskortinn þó ekki á sig fá og stendur jafn stöðugur og hinir. Saman flytja þeir á nýtt heimili þar sem kennir ýmissra grasa í leikfangaherberginu. Mest af öllu heillast tindátinn þó af fagurri dansmey, sem líkt og hann stendur á öðrum fæti. Hún er þó umtalsvert hærra sett og býr í kastala. Það kemur ekki í veg fyrir að tindátinn unni henni hugástum. Þegar nóttin leggst yfir og heimilisfólkið fer að sofa bregða barnagullin á leik. Það gengur á með dansi og látum, hjá öllum nema tindátanum og dansmeynni. Bæði standa staðföst á sínum eina fæti og horfast á af einbeitni. En tindátinn átti eftir að taka á honum stóra sínum og lenda í ýmsum hremmingum áður en hann fengi að nálgast ástina sína. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.-
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. "Tindátinn staðfasti" er ein þeirra sagna Andersens þar sem leikföngin vakna til lífsins, og eiga slíkar sögur enn í dag sér beina leið inn í barnshjörtun. Tindátinn er ekki eins og allir hinir, en lætur það ekki á sig fá og stendur staðfastur á sínu. Sagan hans er falleg frásögn um það, hvernig það að eiga sér takmark og ástríðu getur hjálpað hverjum sem er að takast á við erfiðleika í lífinu.

Diese Produkte könnten Sie auch interessieren:

Die größte Geschichte
Die größte Geschichte
von: Verbum Medien, Kevin DeYoung, Julia Schulz
ZIP ebook
9,99 €
Les histoires d'Oscar et Carrosse
Les histoires d'Oscar et Carrosse
von: L'école des loisirs, Ludovic Lecomte, Irène Bonaccina
ZIP ebook
8,99 €
Chien Pourri à Hollywood
Chien Pourri à Hollywood
von: L'école des loisirs, Colas Gutman, Marc Boutavant, Blandine Roussel, Keziah Cardinal, Alice Clément, Krokin Commault, Claude Clément, Fleur Pierret, Marin Clément, Saël Commault, Patrice Clément, Lageon Commault, Marius Clément, Tom Pierret, Song Pham, Fred Commault, Jacques Clément, Anne Sophie Labadie, Marie Campion, Denis Campion, Jean Claude Commault, Annie Commault, Jean Marc Pinaud, Paul Bonnin, Charlotte Dignat, Fabrice Marinoni, Géraldine Fouché
ZIP ebook
8,99 €